Flottir Aular

01.01.2007 22:17:55 / Binni

Árið 2006

Þetta gerðist merkilegt árið 2006!
Var búinn að gera flottara svona.. en það eyddist! aaaargh!!
Endilega kommentið ef ykkur finnst eitthvað vanta ;)



Jan

Nýtt ár byrjað....

ML byrjar að nýju...
Stjórnarskipti

Stjórnarskiptarball


Feb

Ekkert merkilegt gerðist í Febrúar
Mar

Laugarljós-Leikrit

Við strákarnir með útvarpsþátt á Útvarpi Benjamín

Árshátíðarvikan
Árshátíðarball


Apr
Prófavika

Vatnsslagur

Koddaslagur

Maí
Bara man ekki neitt hvað gerðist í Maí

Jún

Vinna í Málning hf. í rvk í allt sumar

Júl
Vinna! Bubba! (sem ég mætti ekki á, Binni beiler)

Ágúst
Verslunarmannahelgin
Símon í Eyjum
Binni á Portúgal


 

 



Busavikan

Busaballið


Sept
Rockstar-kvöldvaka
Paintball-mót
Leikhúsferð, Footloose

Okt
Lokaða ballið


Binni fékk bílpróf!

Nóv

Bad Hair-day


Blítt og Létt


Náttfatadagur/Náttfataball

Des

 

Jólapróf!
Jólafrí

Erla hætt í ML:(

Árið liðið

Gleðilegt nýtt ár!

og ég sé ykkur ML-ingana 7. Janúar!

Adios!

Binni

P.S

Vill minna á ML-Flensborg 8. Jan í Gettu Betur!


 


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 16:03:45 / a-eyfellingurinn

Jólin og allt það

jæja þá eru jólin og allt það stress sem fylgir þeim yfirstaðið. Núna fer fóls síðan aftur að koma sér í vinnu eftir 3 daga frí og fríðindi þar sem sennilega langflesstir íslendingar hafa bara legið á maganaum á meðan það skóplaði í sig góðum og dírum mat.

en þar sem eru jól og árið senn að líða þar og þar sem talsvert hefur verið um dauðsföll vegna bílsslisa þá langaði mér að setja inn litla jóla sögu....

Sagan um litladrenginn.

 

Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að kaupa gjafirnar

sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr.

Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í hljóð.

Þetta á eftir að taka heila eilífð og ég á enn eftir að fara á svo marga staði".

Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju árinu. Ég vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað svo eftir jólin.

 Allavegana, ég kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég að skoða verðin, hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona dýr leikföng. Eftir smá

tíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir litlum strák um 5 ára, sem hélt á dúkku upp við brjóstið sitt.

Hann strauk hárið á dúkkunni og virtist svo sorgmæddur.

Svo snéri litli strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina á honum

"amma, ertu viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?" Gamla konan

svaraði "þú veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan mín" Svo bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði sig um.

Hún fór fljótlega.

Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til hans og spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna. "Þetta er dúkkan sem systir mín elskaði mest og langaði svo mikið í fyrir jólin. Hún var svo viss um að jólasveinninn myndi gefa sér hana. Ég sagði honum að kannski eigi jólasveinninn eftir að koma með dúkkuna til hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. En hann sagði við mig sorgmæddur "Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna þar sem hún er núna.

Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún geti gefið henni hana þegar hún fer þangað". Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann sagði þetta.

“Systir mín er farin til þess að vera með Guð. Pabbi segir að mamma sé líka

að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti farið með dúkkuna fyrir mig og gefið systur minni hana".

Hjartað mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín og sagði "Ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg strax.

Ég bað hann um að bíða þangað til að ég kæmi heim úr búðinni"

Svo sýndi hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlægjandi.

"Ég vil líka að mamma taki þessa mynd með sér svo að hún gleymi mér aldrei"

"Ég elska mömmu mína og ég vildi óska að hún þyrfti ekki að fara, en pabbi segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu systur minni".

Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög hljóðlátur.

Ég teigði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening upp og sagði við strákinn

"en ef við athugum aftur í vasan til að tékka hvortað þú eigir nógan pening?"

Allt í lagi sagði strákurinn "ég vona að ég eigi nóg"

Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því og við

byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni, og meira að segja

smá afgangur.

Litli strákurinn sagði "Takk Guð fyrir að gefa mér nógan pening. Svo leit

hann á mig og sagði " Í gær áður en ég fór að sofa þá bað ég Guð um að vera

viss um að ég hafi nógan pening til þess að geta keypt dúkkuna handa systur minni. Hann heyrði til mín"

"Mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa hvíta rós handa mömmu,

en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en hann gaf mér nóg til að kaupa rósina líka". Sko mamma elskar hvíta rós".

Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti strákinn. Ég kláraði að versla með allt öðru hugarfari ég gat ekki hætt að hugsa um litla strákinn.

Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum síðan "maður keyrði drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa voru í. Litla stelpan dó samstundis en mamman var í dái" Fjölskyldan varð að ákveða hvort það ætti að setja hana í öndunarvél eða ekki, af því að unga konan myndi ekki vakna úr dáinu.

Var þetta fjölskylda litla stráksins?

 Tveim dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu að unga konan hafi dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð og keypti búnt af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séðkonuna og óskað sér í seinasta skipti áður en hún væri jörðuð. Hún var þarna í kjól, haldandi á fallegri hvítri rós með myndinni af litla

stráknum og dúkkuna á brjóstinu.

Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst til eilífðar.

Ástin sem þessi itli strákur hafði til mömmu sinnar og systur, er enn þann dag í dag, erfitt að ímynda sér.

Og í einni svipan tekur drukkinn maður þetta allt frá honum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Megið þið hafa ánæguleg áramót og gleðilega jólaresst.

 Veriði sæl að sinni og gleðileg jól.

A-Eyfellingurinn;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 01:28:29 / a-eyfellingurinn

Reglur um shotgun

SHOTGUN REGLURNAR!!

Kenningin

Hugtakið "Shotgun" vísar til fremra farþegasætis í bifreið. Að "kalla Shotgun" er það að krefjast stöðu í framsæti farþega fyrir sjálfan sig. Þar sem þetta sæti er það eftirsóttasta þegar ekið er um í bíl, hefur eftirfarandi listi af reglum verið settur saman til að tryggja að Shotgun getur verið fengið á sanngjarnan og réttsýnan hátt af hvaða farþega sem er.

Reglurnar

Meðfylgjandi reglur hafa komið til í gegnum mörg ár af könnunum á siðum Shotgun og eru hannaðar með hliðsjón af hugmyndum um sanngirni gagnvart öllum. Listin er jafnframt fullkomnasti og yfirgripsmesti listi sem til er um reglur fyrir Shotgun í dag.

Þú verður að segja orðið "Shotgun"

Þú verður að segja orðið "Shotgun!" til að geta fengið rétt þinn á Shotgun. Þetta verður að vera borið fram skýrt og nógu hátt til að a.m.k. einn annar farþegi farartækisins geti heyrt í þér. Engar breytingar á orðinu eru samþykktar. Eftir að þú hefur fengið Shotgun hefur þú samstundis fengið réttindi á Shotgun fyrir komandi bílferð. Hvað sem öðru líður, ef enginn heyrir þig kalla "Shotgun" er leikurinn enn í gangi.

Verkið verður að vera klárað áður en hægt er að kalla "Shotgun"

Til að þessar reglur virki almennilega, er frumskilyrði að þú skiljir og samþykkir hugtakið "verk". "Shotgun" má aðeins vera kallað eftir að verkinu er lokið. Í stuttu máli, verkið er athöfn eða hlutur sem þarfnast ferðar í bíl. Verkið getur verið hvað sem er frá heimsókn í vinahús og verslunarferð í verslanamiðstöð, til heimsóknar í Miklagljúfur. Ekki er hægt að leggja áherslu á hversu mikilvægt þetta er vegna þess að þetta býr til Shotgun-ramma, sem tryggir að allir hafi jafnan rétt til að kalla Shotgun. Það er enginn glæpur verri en að kalla Shotgun á mánudegi tilvísandi tónleikaferð á föstudegi. Sumir kjósa að spila Shotgun þannig, og þeir eru bjánar.

Þú verður að vera úti til að kalla Shotgun

Besta leiðin til að ákvarða af nákvæmni hvenær verkið er búið er að skilgreina þetta augnablik sem tímann sem farið er út úr húsinu sem að verkið fór fram í. Ekki þurfa allir að vera komnir út, en einhver verður að heyra þig kalla Shotgun. Sumir kjósa að nota aðra útgáfu af þessari reglu sem krefst þess að allir verði að vera komnir út áður en hægt er að kalla Shotgun. Þetta virkar ekki, heldur leiðir til þess að allir kalla Shotgun í einu og það getur leitt til andlegs ofbeldis.

Berfætisreglan

Þar sem þú verður að vera utanhúss til að mega kalla Shotgun, taka sumir skóna sína, hoppa út, og kalla Shotgun áður en þeir fara í skóna sína. Þetta er ekki leyfilegt og verður fólk því að vera í skónum sínum, ef það kýs að klæðast skóbúnaði, til að mega kalla Shotgun.

Endurkomureglan

Ef þú kallar Shotgun og ferð síðan aftur inn í hús af einhverri ástæðu verður þú að kalla Shotgun aftur þegar þegar þú kemur aftur út. Eftir að þú hefur farið inn er Shotgun möguleiki fyrir alla.

Þegar verkið er utanhúss

Ef að verkið er utanhúss, sem það oft gerir, skal ákveða um hvenær verkinu skuli lokið til að hægt sé að kalla Shotgun. Allar stærri deilur um lok verks, sem og allt ósamræmi, getur auðveldlega verið lagað með einföldum Skæri, Steinn, Blað.

Sjónlínureglan

Þegar upp kemur að verkið er hike eða annað víðtækt utanhúss verkefni má ekki kalla Shotgun fyrr en farartækið er í sjónlínu. Þessi regla er einungis þörf þegar farþegar hafa verið utanhúss í lengri tíma og hafa farið lengri vegalengdir frá farartækinu.

Hönd-á-hurð

Ekki er hægt að kalla Shotgun eftir að hönd einhvers heldur í hurðarhún við umrætt sæti. Þetta undirstrikar rétt hans á Shotgun og að kalla Shotgun þegar þetta hefur verið gert er algjör óþarfi. Þetta er eitt atriði þegar manneskja þarf ekki að kalla Shotgun til að fá sætið. Þessi regla er til þess að þú þurfir ekki að hafa einhvern annan til þess að vita að þú eigir réttinn á sætinu, þar sem venjulega þyrfti að vera einhver annar til að vita að þú eigir réttinn.

Sestur

Ef þú nærð að setjast í Shotgun-sætið áður en nokkur annar kallar Shotgun heldur þú réttinum þó svo að einhver annar kalli Shotgun eftir að þú settist. Þessi regla svipar til Hönd-á-hurð reglunnar, þar sem þú þarft ekki að kalla Shotgun eða einhver annar að vera nálægt til að vita að þú eigir réttinn.

Gálginn

Þessi regla gildir þegar þú hefur kallað Shotgun og varst að bíða eftir aflæsingu hurða. Ef þú lyftir handfanginu á meðan á aflæsingu stendur og þar með veldur því að hurðin er áfram læst, ertu ógildur þátttakandi í Shotgun í þeirri ferð. Á þessari stundu er Shotgun laus fyrir alla aðra farþega.

Bílskýli

Ef þú ferð inn í bílskúr sem er tengt húsinu án þess að þurfa að fara út máttu kalla Shotgun um leið og þú kemur inn í skýlið. Þetta gildir aðeins um litla áfasta bílskúra. Fjöldabílskýli og óáfastir bílskúrar eru ávallt taldir sem utanhúss, jafnvel þó þeir séu neðanjarðar.

Margir bílar

Við þær aðstæður að hópur fólks ferðast í fleiri en einum bíl, verður þú að skilgreina hvaða bíl þú kallar Shotgun fyrir. Dæmi: Ef tveir bílstjórar heita "Jón" og "Sölvi", verður að segja "Shotgun Jón" og "Shotgun Sölvi", eftir því við hvorn bílinn er átt.

Shotgun-fráhvarf

Ef rétthafi Shotgun yfirgefur farartækið til að vinna verk verður Shotgun laust fyrir farþega í öðrum sætum. Þegar Shotgun er laust verður að kalla Shotgun á undan hinum farþegunum. Oft er ósamræmi í því hvenær Shotgun er laust. Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til að bersýnilega ákvarða þennan tímapunkt, en ennþá er engin skýr regla um þetta sem gildir um þetta atriði. Af þessari ástæðu er Skæri, Steinn, Blað auðveldasta leiðin til að ákvarða hver hefur réttinn á Shotgun. Undantekning á reglunni er þegar Shotgun-rétthafi yfirgefur sætið til að vinna verk fyrir bílstjórann, t.d. fylla á bensín og kaupa pepsí, heldur hann réttinum á Shotgun.

Önnur sæti

Þegar einhver hefur kallað Shotgun má kalla Shotgun á hin lægra settu sætin með sömu reglum og fyrir Shotgun. Dæmi: hægt er að segja "afturí-hægri" eða "afturí-miðja". Að auki má neita sætum með t.d. "ekki afturí-miðja", sem getur sett þig í öll önnur sæti en miðjusætið aftur í.

Eftirlegukind

Ef þú kýst að vera eftir í farartækinu á meðan aðrir farðþegar vinna sín verk hefur þú fullan rétt á Shotgun. Oft kemur það fyrir að ekki þurfa allir að fara inn til að vinna smærri verk. Þó er hægt að misnota þetta þegar einhver vill bíða í farartækinu í lengri tíma til þess eins að ná réttinum á Shotgun. Þessi tegund af fólki er kallað "Shotgun gláparar".

Shotgun gláparar

Gláparar eru fólk sem girnast Shotgun meira en venjulegt fólk. Þetta fólk breytir venjulegri hegðun til að ná Shotgun. Þeir gera þetta löglega, eins og t.d. með því að spretta út úr húsi, og þar með geta ekki verið ógiltir. Kosturinn við að vera glápari er auðvitað sá að þú færð alltaf Shotgun. Samt sem áður er litið með vanþóknun á þetta fólk.

Ógilding

Þegar Shotgun regla er brotin, eins og þær eru hér fyrir ofan, getur viðkomandi verið ógiltur fyrir réttinum um Shotgun í þeirri ferð. Ógilding virkar sjálfkrafa ef þú kallar Shotgun innanhúss, eða ert ekki í skónum þínum þegar þú kallar Shotgun, eða þú sýnir einhverja aðra blygðunarlausa lítilsvirðingu gegn reglum Shotgun. Við minniháttar brot á reglum gildir ógilding aðeins um næstu ferð, eftir hana hefur viðkomandi fullan rétt á Shotgun eins og allir aðrir. Þegar einhver hefur verið ógiltur hafa hinir farþegarnir rétt á að kalla Shotgun samkvæmt reglum.

Ósamræmi

Ef til ósamræmis kemur, sem skeður oft, varðandi hver hefur rétt á Shotgun, er oftast gripið til Skæri, Steinn, Blað. Oft gerist þetta eftir að tveir aðilar kalla Shotgun á sama tíma. Athugasemd varðandi ósamræmi: Margir nota "Bílstjórinn ræður" regluna sem segir að bílstjórinn ráði ef upp kemur ósamræmi. "Bílstjórinn ræður" reglan segir líka að bílstjórinn geti haft lokaáhrif um hver fær Shotgun. Þessi útgáfa af reglunni er mjög huglæg, og stríðir gegn tilgangnum með að kalla Shotgun. Skæri, Steinn, Blað er miklu sanngjarnari leið til að ráða fram úr ósamræmi.

Nýjar reglur

Vegna þess að Shotgun er lifandi vera og stöðugt í breytingu, þarf stöðugt að semja nýjar reglur. Allir hópar eru velkomnir til að útfæra sínar eigin reglur ef tilefni gefur til. Ný regla verður of til við stærri vandamál. Mikilvægt er að muna að nýjar reglur taka ekki gildi fyrr en í næstu ferð.

Undantekningar

Þó svo að Shotgun-reglurnar hafi verið samdar með sanngirni í huga koma oft upp aðstæður þar sem undantekningar verða að vera gerðar.

Sérstakir aðrir

Þetta er mikilvægasta undantekningin. Ef sérstakur annar (SA) er með í för og þessi persóna er SA eða hugsanlega SA bílstjórans fær viðkomandi sjálfkrafa rétt á Shotgun.

Fjöldaköll

Það er sjaldgæf undantekning að fleiri en ein persóna hefur löglega rétt á Shotgun. Þetta skeður t.d. þegar tveir eða fleiri hópar af fólki hittast hjá farartæki, og í báðum/öllum hópunum er einhver sem hefur réttinn á Shotgun. Ef ekki er hægt að skera úr um hvor/hver kallaði Shotgun fyrst, er eina sanngjarna leiðin að útkljá deilurnar með Skæri, Steinn, Blað.

Eigandi/ökumaður skipting

Ef einhver annar en eigandi ekur bíl og eigandinn er farþegi fær eigandinn sjálfkrafa réttinn á Shotgun. Þegar við á sýnir þessi regla eiganda bílsins virðingu.

Lengri ferðir

Reglurnar hér fyrir ofan hafa verið hannaðar fyrir styttri ferðir (undir einni klukkustund). Fyrir lengri ferðir er betra að nota ekki þessar reglur, því hvatningin til að vera Glápari er of mikil


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 12:59:55 / Binni

Jæja góðann daginn!

Nú er prófavikan í gangi, og þar sem ég virðist vera sá eini sem gerir eitthvað á þessari síðu.

Styttist í jólafríið! shit mig hlakkar til :D
Ég verð samt örugglega ekki neitt að vinna neitt, því ekki er mikið í boði í Laugarási til að vinna við...
Held samt að allir hinir séu að fara að vinna.
Þar sem ég er algerlega hugmyndasnauður, og nenni ekki að blogga að þá ætla ég að hætta þessu bloggi, og ég ætla ekki að blogga aftur fyrr en einhverjir aðrir en ég blogga ;)

Adios! Binni

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 12:49:52 / Binni

Blessuð!

komið þið sæl
Ég ætla hér að koma með nokkrar venjulegar myndir af lífinu hér á Laugarvatni

ATH! hægt að hægri klikka á myndirnar og gera view image til að sjá þær stærri



Auðunn og Haraldur ávalt í stuði..



Auðunn (kyn)Tröll



Jón í fyrra, loksins búinn að ná þessum aukakílóum af sér ;)

Koma fleiri myndir seinna

Adios!

Binni

» 6 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 18:16:09 / a-eyfellingurinn

Ertu búin(n) að búa of lengi á hvolsvelli???....

Topp 10 listinn yfir hluti sem benda til þess að þú hefur búið of lengi á Hvolsvelli:

1. Það er kúl að hanga í söluskálanum á kvöldin.

2. Að fara á deit er að rekast á einhvern út á götu.

3. Þú talar um að fara til Reykjavíkur eins og að fara í ferðalag til útlanda.

4. Hella er helsta menningarmiðstöðin.

5. Það telst venjulegt að fara að sofa fyrir kl. 23:00 á laugardagskvöldi.

6. S.S. er orðið góðum kosti þegar að kemur að menntunarmöguleikum.

7. Að fara á rúntinn felur í sér ferðalag út fyrir bæjarmörkin.

8. Þér finnst ósköp eðlilegt að sjá Traktora og sauðfé á aðalgötunni.

9. Þú sérð ekkert atugavert við að djamma á Hótel Hvolsvelli.

10. Þú skilur ofangreindar setningar.

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 20:43:39 / Binni

Kenning?

Ég er hér með góða kenningu...

Ég trúi því að áfengi auki einkenna hjá öllum á Peladophobia.

Peladophobia er einmitt hræðsla við sköllótt fólk...
Einkennin sjást greinilega hér á Laugarvatni, þegar fólk er að drekka, þegar ekki eru böll að þá er fólk einmitt oft mjög hrætt við að mæta húsverðinum honum Pálma.
Ég einmitt trúi því að a.m.k allir ML-ingar þjáist af þessari fóbíu...


Passið ykkur á honum þessum! hann gefur áminningar! ;)

Adios!
Binni



» 3 hafa sagt sína skoðun

10.11.2006 21:26:25 / Binni

Týndi Hlekkurinn



Mér leiddist þegar ég gerði þessa myndasögu í fyrra... hún er um Harald, Týnda Hlekkinn, þetta kannski útskýrir nafnið týnda hlekkinn, ef fólk fattar það ;)

*Til að sjá myndina almennilega þá bara hægri klikkið þið á hana og gerið view image eða eitthvað álíka

Adios! Binni

» 4 hafa sagt sína skoðun

10.11.2006 13:03:54 / tyndi_hlekkurinn

Í sjöunda himni

Jæja. Nú er kominn föstudagur og maður er búinn í skólanum og langar að komast heim. En vandamálið er að það eru allir farnir í bæinn þanni að ég sit fastur hér:S Það væri kanski ágætt ef Ari gamli væri með símann sinn þá væri hægt að ná í hann og láta hann redda málunum.
Gærdagurinn var nú með eindæmum frásögufærandi. eftir að hafa brotið nokkra stóla við að rugga mér á þeim í efnafræðistofunni. þá ákvað ég að leggja af stað í hina mikklu höfuðborg okkar Reykjavík, með skólanum. Við fórum á Hemma gunn þáttin "Í sjöunda himni" og guð minn almáttugur held ég að þessi þáttur endist ekki lengi í sjónvarpinu. Það eina sem var eithvað verðugt þess að horfa á þáttinn var karlinn í krabinu sem sló víst rækilega í gegn hjá þeim sem voru hjá honum og áttu að leika stórhlutverk í bakrunninum. Þar stóð hún Björk mín og stóð sig ábbyggilega með sóma, en þvímiðuir sá ég hana ekkert þar sem glampaði svo mikið á skjáinn hjá mér, þar sem ég sat inni sal hjá Hemma kallinum. Allavega glataðu þáttur og ég mæli með að fólk kíki á hann til að sjá það.
En allavega. Er búinn að finna Ara. heyrumst síðar

Tyndi hlekkurinn:S:S8)


*edit*

Hér er svo einn skemmtilegur efnafræðibrandari.

Þegar Dr. Daniel Klitzberg fann upp diffrun á saltsýru(HCL) Þurfti hann að rafgreina mólmassa af Baríumklóríð(BaCl2). Til þess notaði hann heildun af mólstyrk, sem hann fann með 1. lögmáli Newtons. Með því fann hann það út, að hægt var að nota píþagoras á allar diffranir saltsýra.. Og þannig fékk hann útkomuna 4,56 M HAHAAHAHHAHAHHAHHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA

En eins og allir vita getur diffrun á saltsýru aldrei orðið meiri en 1.3 M HAHAHAA


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 21:10:09 / tyndi_hlekkurinn

Mínar fyrstu skriftir

Já. sumir (Binni) eru farnir að kvarta yfir því að maður sé ekkert búinn að skrifa inná þessa blessuðu síðu. Og Þar sem ég var að installa netkortinu mínu sem var farið að safna ryki inní tölvunni minni þá ákvað ég að koma einhverjum orðum frá mér til þess að koma fram sáttum:D
Annars er lítið að frétta af mér í dag. Var að skítfalla í eðlisfræðiprófi, þar sem helsta ástæðan fyrir því var hin undurfagra Björk Baldursdóttir sem var að trufla mig við lærdóminn í gær. Ég ákvað þá að hefna mín og leifði henni ekki að læra undir líffræðipróf í leiðinni. Þannig að, ef ég fell þá fellur hún:P
Nú er Auðunn að koma úr sturtu eftir að hafa litað hárið sitt bleikt með leikbæjar sprayi. Silja var víst ekkert allveg sátt með það svo hann þurfti að gjöra svo vel að þrífa þetta úr sér. Synd, mér fanst hann svolítið sætur bara;)
en jæja. nú er komið að lokum hjá mér í dag.

Heyrumst síðar.... eða eitthvað
Týndi_hlekkurinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 11:04:59 / Binni

Jæja...

Jæja gott fólk

Víst að ég er greinilega sá eini sem blogga hérna.
Núna sit ég hérna í Íslensku og læt mér leiðast. Mjög lítið búið að gerast undanfarið, nema kannski á morgun verður ferð í þáttinn hans Hemma Gunn, sem ég held að verði mjög margir sem ætla að fara, nema félagsskíturinn hann ég, því ég einfaldlega nenni ekki ;)
Það eina merkilega sem ég held að hafi gerst er það að Tóti potato sofnaði víst í ensku áðan, og svaf allan tímann :lol: En einhvernveginn held ég að Pattý hafi einfaldlega ekkert tekið eftir honum.

Ég er að pæla í að nenna ekki að blogga meira og skella mér í að læra *hóst* Football manager *hóst*

Hér er svo ein mynd af look-a-like



Einhver í U2 minnir mig ----------- Flowerboy(Snorri)

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 11:44:29 / Binni

Bad Hair Day!

Í dag er svokallaður Bad hair day í skólanum :D

og þá eiga allir að mæta með flippuðustu hárgreiðslu sem þeir geta gert


Binni, Haraldur & Símon með hárið í lagi ;)


Binni, Haraldur, Símon og Guðbjörg ;)

Binni kveður!

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 12:57:22 / Binni

Tónlistarleikur

  1. .Show me how you do that trick. The one that makes me scream she said _______________________________________________________________________________________
  2. Mumbling goodmorning & raising my head. A bad breath kiss to my pillow pet _______________________________________________________________________________________
  3. If beauty sits the child's kiss Of laughter I amend Can you catch her if she runs? _______________________________________________________________________________________
  4. For today we will take the body parts and put them on the wall For treated indigenously, digenously _______________________________________________________________________________________
  5. fall is here, hear the yell back to school, ring the bell brand new shoes, walking blues _______________________________________________________________________________________
  6. It's the cruelest joke to play I'm so high, i run in place Only a line, we separate, so _______________________________________________________________________________________
  7. The piercing radiant moon, The storming of poor june, All the life running through her hair, _______________________________________________________________________________________
  8. You are one of God's mistakes. You crying, tragic waste of skin. I'm well aware of how it aches. And you still won't let me in. _______________________________________________________________________________________
  9. What's with these homies dissin' my girl? Why do they gotta front? _______________________________________________________________________________________
  10. I don't have plans and schemes, And I don't have hopes and dreams. I don't have anything,
Þetta er leikur þar sem ég lét iTunes á shuffle, og skrifa línurnar af fyrstu 10 lögunum sem koma þar upp, og þið eigið að giska á hvaða lög þetta eru
BANNAÐ er að nota google til að finna þessi lög, og svo er það einfaldlega skemmtilegra ;)

Enjoy!

kv. Binni

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 09:19:35 / Binni

....


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 20:55:07 / Binni

Jæja gott fólk!

Nú er komið að enn einu blogginu...

Á föstudaginn verður haldið á Lauga sem er einhverstaðar þarna fyrir norðan eða eitthvað... þar á víst að keppa í einhverjum íþróttum.. og auðvitað ætla allir Flottu Aularnir að mæta, nema kannski hann Simon, sem þarf að fara að vinna.
Þetta verður aflaust skemmtileg ferð

En annars er ekkert merkielgt búið að gerast frá því í seinasta bloggi nema kannski það að við hinir höfum tekið eftir því að einn af Flottum Aulum stundar alltaf kynmök á sama tíma á hverjum einasta degi, sem er klukkan svona 20-21 á hverju einustu nóttu.. nefni engin nöfn, en held að það vita margir um hvern er verið að tala...

en ég held ég ætli bara að enda þetta blogg

Binni kveður!


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
The síða
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 15 apríl